Könnun

Ertu kominn í sumarskap?'

Auglýsing

Starfsfólk

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Kominn tími til ....

15. maí 2010 klukkan 12:25

Sæl öll og takk fyrir síðast.
Síðan sofnaði í rúmt ár og lítið verið spurt um hana en samt alltaf einhverjar heimsóknir.
Ég ætla að gera aðra tilraun að virkja síðuna og vonast eftir betri viðbrögðum, skifuðum sem og í máli.

Þeir sem luma á myndum eru velkomnir að hafa samband við mig eða senda mér þær á tölvupósti, audunns@internet.is


Kv. Auðunn

A vakt kynnisferda
Engin athugasemd

Á síðan að vera læst?

13. mars 2009 klukkan 21:58
Sæl öll.

Smá umræður hafa átt sér stað á vaktinni um hvort eigi að hafa síðuna læsta eða ekki.
Commentið á endilega um þetta og takið þátt í könnunninni hér til vinstri.


Auðunn
A vakt kynnisferda
Engin athugasemd

Nýjar myndir

12. mars 2009 klukkan 11:19
Jæja loksins eru komnar nýjar myndir. Var að bæta í eftirfarandi flokka: Á vaktinni og Rúturnar okkar. Tveir nýjir flokkar hafa bæst við: Koppar og Felgur og Út í bláinn.

Njótið vel.

Kv. Auðunn
A vakt kynnisferda
Engin athugasemd

Varðandi myndir.

12. janúar 2009 klukkan 21:15
Að gefnu tilefni vill ég benda þeim sem eru á myndum inná þessari síðu og vilja ekki hafa þær hér, þá er ekkert mál að fjarlægja þær. Síðan er ætluð til að hafa gagn og gaman af.

Þeir sem hafa myndir til birtingar á síðunni þá er velkomið að senda mér þær.


Kv. Auðunn
audunns@internet.is
A vakt kynnisferda
Engin athugasemd

Þorrablót A-vaktar

12. janúar 2009 klukkan 20:39

Þorrablót A-vaktar verður haldið 23.janúar. 
Taka þennan dag frá því að þetta verður heljarinnar skemmtun.
Nánari upplýsingar á kaffistofunni okkar á Bsí. 
Allir velkomnir og muna að skrá sig sem fyrst.

Kv. Auðunn

A vakt kynnisferda
Engin athugasemd

Árið 2008

27. desember 2008 klukkan 13:14

Sæl öll

Árið 2008 hjá Kynnisferðum er búið að vera hreint út sagt frábært. Það hefur verið í nógu að snúast og mikið að gera á öllum vígstöðum, nýjar rútur bættust í flotann, nýtt starfsfólk, fyrrverandi starfsmenn byrjað aftur og hætt aftur o.s.fr....    Kynnisferðir áttu stórafmæli á árinu 40ára. Árshátiðin var haldin í Gullhömrum og var glæsileg í alla staði.

Við á A-vaktinni vorum dugleg að hittast, við héldum Þorrablót heima hjá Sigga Ásgeirs. ,  fórum í rannsóknarleiðangur í Borgarnes í sumar, leigðum okkur "Grænann" sal í haust og duttum hressilega í það.

Það var altalað af nýjum starfmönnum og þeim eldri hvað gaman væri að vera á  A-vaktinni sem var full af gríni, prakkaraskap, almennum hressleika og mikil samstaða einkenndi vaktina.

Síðustjóri óskar öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Auðunn

A vakt kynnisferda
1 athugasemd

Þegar tveir fílar sitja saman á trágrein, þá brotnar hún.

27. október 2008 klukkan 21:56
Óskarinn var að vafra á veraldrarvefnum og fann þá myndband um það hvernig Bandarískir rútubílstjórar slást.
http://www.youtube.com/watch?v=Aqdcsy4hSyM

Óskarinn Er búinn að setja inn nýjar myndir og er líka að búa til nýtt myndaalbúm um daginn sem að frikki svaf yfir sig og stjórnendur þessarar síðu þurftu að sjálfsögðu að stríða honum með það.


A vakt kynnisferda
1 athugasemd

Síðan er vöknuð.

07. september 2008 klukkan 09:13
Jæja þá eru farnar að detta inn myndir.
 Bæst hefur liðsauki á síðuna og ætlar hann Óskar Pétur að hjálpa mér. Velkominn Óskar

Kv. Auðunn
A vakt kynnisferda
2 athugasemdir

Síðan fer að koma úr sumarfríi.

28. júlí 2008 klukkan 13:06
Eins og flest starfsfólk A-vaktar veit þá tók stjórnandi síðunnar sér langt sumarfrí og bætti við fæðingarorlofi. Uppúr miðjum ágúst fer síðan að snúast aftur. Ykkur er velkomið að senda inn vinnutengdarmyndir til mín og ég set á síðuna, netfangið er audunns@internet.is

kv.Auðunn
A vakt kynnisferda
Engin athugasemd

Komið og farið

18. apríl 2008 klukkan 11:43

Á síðustu vikum hafa orðið nokkrar breytingar á vaktinni og menn eru að koma og fara. Finnbogi ( B vakt) er farinn og Kristján hafa hafið störf hjá SBA - Norðurleið. Siggi Jó tók við starfi Finnboga á B-vaktinni sem vaktstjóri, Siggi þú ert með A-vaktarhjarta og því verður ekki breytt. Halldór drivergudie með meiru er farinn að starfa hjá Air Atlanta. Takk fyrir samstarfið strákar, þið eruð flottir. Nýir á vaktinni eru Erlendur,Lazo ,Bjarki og ARON. Velkomnir strákar

A vakt kynnisferda
8 athugasemdir